Ok, ég er að vinna núna með gaur sem hættir ekki að tala..

Ég vinn svona iðnaðarmannavinnu þannig maður er oft sendur í einhver verkefni og þá með einhverjum ákveðnum einstaklingum.. og núna er ég fastur í stóru verkefni með þessum náunga og hann fokking talar non-stop. Það er eins og hann haldi að hann deyji ef hann hætti að tala því allt sem hann segir er svo mikið non sens og aldrei í neinu samhengi. Og útaf þessum gaur þá kem ég helmingi þreyttari heim en ég geri vanalega. Og líka þegar ég kem heim þá er ég kominn með svo mikið ógeð á fólki sem talar að mér er bara orðið drullusama hvað fjölskyldan er að segja við mig þegar þau koma að spjalla eitthvað við mig, þó ég vilji að mér sé ekki drullusama..

Hvað segiði ? á ég ekki bara að lemja hann með kúbeini á morgun og loka hann niðrí holræsi ? því það er mögulega inní myndinni