Hvernig væri það að reyna að selja KFC þá frábæru hugmynd að kaupa eitt af óseldu plássunum í nýju viðbyggingunni við Glerártorg svo að við Akureyringar getum fengið að njóta þess að borða KFC þegar að við viljum líka!
Ég persónulega er komin með nóg af því að fara á KFC og verða sorgmædd þegar ég er búin að borða því að ég veit hversu langt mun verða þar til ég fæ aftur.
Ég er orðin leið á því að koma við á KFC á leiðinni Norður til að kaupa mat fyrir vini mína sem þeir borða kaldan heima á Akureyri.
JÁ! Við erum KFC unnendur líka, og ef eitthvað er þá örugglega meiri heldur en margir reykvíkingar.

KFC MYNDI BLÓMSTRA Á AKUREYRI LÍKA!!!