Segjum að þú værir af einhverri ástæðu (skiptir ekki máli hver) að falla hratt niður. Það er einhver svipuð hæð og í flugvél eða eitthvað.
Á meðan þú ert að falla ferð þú að hugsa um á hvorum endanum þú viljir lenda (bara pæling). Hvort myndir þú vilja lenda á fótunum í örvæntingu til að bjarga þér, eða lenda á hausnum til að enda þetta hratt? (nú eða á einhverri hlið ef einhver kýs svo).
Gerum bara ráð fyrir að þú getir valið. Mér er alveg sama hversu heimskulegt þetta er, þetta er bara mjög einföld pæling. Og ég geri mér einhverja grein fyrir því líka að þegar maður fellur úr þeirri hæð lendir maður örugglega bara í klessu hvort sem er…