Ókei ég veit ekki alveg hvar ég á að setja þennan kork en here goes þar sem ég held að sem flestir fari hér um.

Nú kannast væntanlega margir við notendurna Batguy, Batchick og KlaraOsk útaf póstasendingum þar sem Batguy er að biðja um ráð hvernig eigi að segja gellunni sem er að reyna við sig um að láta sig í friði því hann eigi kærustu, og síðan frá KlaraOsk að hún sé að nöldra og hvernig eigi hún að næla í gaurinn sem eigi kærustu því hún sé svo miklu betri en kærastan.

Svo finnst mér soldið hallærislegt að þau séu öll notendur hér á huga og fer því ekkert á milli mála að þau sjá öll póst hvors annars þannig að ég fór að hugsa hvort þetta væri eitthvað eitt stórt leikrit. Þetta er bara orðið of asnalegt.

Vonandi móðga ég engan með þessum kork mínum það er ekki ætlunin, bara vangaveltur…