Styrktartónleikar fyrir Dagbjörtu Rós og Caitlin Viktoríu verða haldnir fimmtudaginn 15.maí á Nasa. Húsið opnar klukkan 20:30 og munu tónleikarnir hefjast 21:00. Miðaverð 1500kr og svo eru frjáls framlög einnig þegin með þökkum. Það verður opinn barinn og aldurstakmark er því 20 ára.

Fram koma; Páll Óskar, Birgitta Haukdal, Ragnheiður Gröndal, Bryndís Jakobsdóttir, Helga Dýrfinna og hljómsveitin Myst. Einnig mun hljómsveitin Afrek taka nokkur lög og spila undir fyrir suma af listamönnunum. Það verður líka frumsamið lag til heiður Caitlin sem samið var sérstaklega fyrir tónleikana. Kynnir kvöldsins er svo enginn annar en Þórhallur Þórhallsson, fyndnasti maður Íslands árið 2007 !!
Ofurhugi og ofurmamma