Hvaða vitleysa er þetta í þér, ég notaði það ansi oft. Næstum daglega. Ég er viss um að það gerðu fleiri.
Bætt við 22. apríl 2008 - 02:42 Ég býst við að þetta sé einhver mistök sem á eftir að laga útaf þessum breytingum sem hefur átt sér hér stað undanfarið.
Ég skil þig. En þetta mun fækka vinsældum á huga.is af því að ég held að margir einmitt notuðu fyrst huga.is sem milligönguleið til að fara svo í Google leit og wikipediu leit og eitthvað fleira sem var þarna í boði. Núna er maður nánast kastað út af huga.is af því að þetta er ekki í boði hér lengur. Iss ekki nógu gott! Og til hvers er þetta nöldur ef ég má ekkert væla/kvarta í Nöldri útaf þessu?
Bætt við 22. apríl 2008 - 02:52 Og stebbib ertu enn á abandonia.com. Ef svo er af hverju er ekki búið að skella inná þar King Quest 3 VGA inná sem er frír leikur. En ég sé að þið eruð ennþá með King Quest 1 og 2 VGA. Það er búið að gera líka nr 3 ef þú vissir það ekki.
Það ætti frekar að taka út símaskrá eða netleit af þvi að það er þarna á sömu leitar síðunni. En mér sýnist allt þetta vera þjónustukerfi frá símanum sem þessi leitarkerfi eru frá sem nú eru í boði hér.
En mig langar endilega í Google leitarkerfið aftur inná hér á huga.is ef það væri möguleiki. Það virkaði alltaf hjá mér allavega. Svo er Google langvinsælasta leitarforritið eins og þið vitið allir hér.
Notaðu bara Opera, þarft bara að skrifa g bil leitarorð eða w bil leitarorð í address bar til að leita, það er svakalega þægilegt og hægt að gera þannig fyrir allar síður sem eru með leit, þarf ekki einu sinni að eyða tíma í að niðurhala milljón aukahlutum til að nota það.
Þetta er eiginlega ekkert svo stórt vesen. Það skiptir engu hvaða vafrara ég myndi nota. En mér fannst samt alltaf þægilegast að fara í Google í gegnum huga.is.
En ég verð víst að sætta mig við þetta….vonandi verður þetta tímabundið ástand.
Bætt við 22. apríl 2008 - 12:50 Ég vissi bara ekki að þessi leitarkerfi sem voru fjarlægð væru fyrir mönnum. En svona er þetta þegar það er farið að vora þá fer allt í vorhreingerningu fyrir fyrsta sumardaginn hehe.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..