Blóð Þegar maður fer í blóðbankann og ætlar að gerast gjafi fær maður spurningalista sem maður þarf að filla út með krossum. Ein af þeim hljóðar svona:
“Þú ert karlmaður og hefur sofið hjá öðrum slíkum”

Núna fyrir stuttu hafnaði blóðbankinn vini mínum fyrir það að vera samkyneigður.

Ef ég myndi lenda í bílslysi og missa helling af blóði… Þá væri mér svo sama hvar typpið á blóðgjafanum hefur verið!

Þetta þykir mér vera mismunun og jafnréttindabrot frá helvíti.

Ég meina… Er blóðið ekki skoðað í bak og fyrir eftir að það hefur verið tekið úr manni?

Hvað finst ykkur?
Mæta lífinu með bros á vör og þegar það snýr baki við þér og gefur skít í þig… Þá brosir þú bara breiðar!