Jæja eftir rúmlega 4 sólarhringa bið (duglegur umsjónarmaður) þá fékkst þessi grein ekki samþykkt heldur var sett í korkahlutann þar sem ég fann hana eftir ekki fyrr en eftir nokkuð langa leit svo ég ákvað að posta þessu hingað og vona að einhver hérna reki augun í þetta ;-)

—————————
Er ekki einhver þarna hjálpfús sem vill aðstoða unga stelpu í neyð ? ;-)

Mig langar svo ferlega mikið í góðan leik en er ekkert inní þessum leikjamálum.

Var í gamla daga oft í Colonization og Civilization og sat dag og nótt yfir þeim og er einnig Mario fan í Nintendo :-)

Ég er ekki mikið fyrir drápsleiki eins og t.d Red Alert né fótboltaleiki eða eitthvað í þá veruna….

Hef heyrt um leiki eins og sims, age of empires, farao, sesar og eitthvað í þeim dúr en veit ekkert meira um þá en nafnið…

Svo ef einhver gæti leiðbeint mér með góða leiki, helst í PC en einnig kannski í Nintendo endilega postið það hérna fyrir neðan.
Og svona aðeins segið frá leiknum….

Kveðja Kisustelpan :-)