ég lennti í því í gær að ég var bara eitthvað að keyra á bílnum mínum í góða veðrinu með félaga minum vorum s.s bara á rúntinum og ok allt í góðu með það og því það var svo gott veður og frekar hlýtt þá ákvað ég að taka T-toppinn niður

nema það að ég stoppa á ljósum og þá kemur einhver gaur við hliðina á mér og byrjar e-ð að flauta á mig og ég leit á hann með svona “hvað?” svip og hann skrúfar niður rúðuna og byrjar eitthvað að hundskamma mig fyrir að keyra um á camaro (sem eyðir miklu bensíni fyrir þá sem ekki vita) og hraunaði yfir mig að það væru menn einsog ég sem værum að halda uppi okri olífélagana og eitthvað rugl! hvað er fokking málið einsog það sé eitthvað mér að kenna að bensínverðið sé svona ? hvernig væri að skamma alla þessa gaura sem keyra um á jeppum ? eða trukkum eða eitthvað þeir eyða alveg jafn miklu bensíni og ég….

skil ekki svona lið

sorry ég bara varð að deila þessum pirring