Það var nefnilega þannig að skólinn minn..eða 8-10 bekkur (sem eru nú ekki nema 40 og e-ð manns samtals) vorum að gista saman í gærkvöldi í svona samkomuhúsi.
Og það vildi svo heppilega til að það skall þetta óveður þannig að við kæmust ekki neitt og vorum bara föst í þessu húsi, og útaf veðri þá fór rafmagnið af öllu svæðinu og allir orðnir e-ð voða spenntir. Svo komu allt í einu þrumur og eldingar og það var rosa..en svo kom rafmagnið aftur.
Mjög góð tímasetning segi ég. =)