Ég ákvað bara að láta ykkur vita að ég er ekkert pirraður, ekkert markvert hefur gerst í lífi mínu uppá síðkastið, skólinn gengur fínt, ég er í ágætu andlegu og líkamlegu jafnvægi og ég sker mig ekki á milli tánna til að líkamlegur sársauki yfirgnæfi andlega þjáningu mína, þó ekki nema í örskotsstund. Einnig hef ég ekki lent í neinni slæmri þjónustu nýlega.

Lifið heil.