Mér finnst rosalega skrítið að það hata “allir” innflytjendur, því það er alltaf svo mikið “vesen” á þeim.
Systir mín vinnur á bar hér í Reykjanesbæ og í gær var svertingi að labba inn (og það er kannski gott að taka það fram að hann var bara að labba inn og var ekki einu sinni búinn að kaupa sér einn bjór)og þá kemur Íslendingur og neglir glasi í höfuðið á honum. Svo er annar maður (um fimmtugt) sem öskrar á pólska vinnumenn á barnum: “Þið eigið ekkert að vera í þessu landi útlendinga fífl!” Og eina sem Pólverjarnir sögðu eftir að manninum var hennt út var að þeir ætluðu að fá sér einn kaldann eftir daginn því annar þeirra var að keppa í einhverju (eða eitthvað).

Það eru alltaf allir að segja að það fylgi svo mikið vesen á þessu liði og þeir eru alltaf að byrja einhver slagsmál. Ég held að það séu frekar við Íslendingar sem eru að byrja með mest af þessu veseni með rasisma og bjánaskap.