Ok ég póstaði þessari spurningu á /tonlist gegn minni betri vitund, og þar sem ég fékk engin viðbrögð en þarf svör ASAP þá ætla ég að setja þetta hérna inn líka. Here goes:

“Hef yfirleitt getað fundið það sem ég er að leita að með aðstoð google en ég hreinlega finn þetta lag ekki, einfaldlega af því ég man hvorki hvernig það hljómar né textann. En það sem ég man og veit að þetta er með Blue Man Group og í myndbandinu eru þeir að kenna fólki að dansa m.a. með því að lyfta höndum upp í loftið og slamma. Ef einhver hérna veit hvað ég er að tala um má sá hinn sami endilega gefa sig fram:)

Og eitt enn. Mig vantar lög. Er að búa til disk til þess að vera með á meðan ég keyri Reykjanesbrautina á leiðina í skólann og aftur heim. Einhver svona feel good/goldenoldies/ný popplög.. Eiginlega bara flest nema kannski mikið þungarokk:).. Þannig að ef þið vitið um einhver svoleiðis lög endilega koma með uppástungur..”

Og bara svona til þess að tengja þetta tilverunni, hvernig er nýja árið búið að tríta ykkur?

Bætt við 16. janúar 2008 - 22:00
Ekki samt hætta að svara korkinum þó að lagið sé komið, vantar hugmyndir að góðum lögum til þess að keyra við:)