Ég er ekki frá því að þessi þráður sé pínu sorglegur.


Ég var að horfa á hinn guðdómega dr. Phil í gær og í þættinum var 20 ára gamall strákur sem safnaði Kærleiksböngsum.. Og svaf og kúrði með þeim og role playaði með þá og klæddi sig upp sem Kærleiksbjörn. Svo var 27 ára gömul kona sem svaf alltaf með einhvern risaelg og kúrði með honum en ekki unnustanum.. Freaky já.

Ég var geeeðveikt bangsaóð þegar ég var minni..Við litli bróðir minn lékum okkur með þá(þegar við slógumst ekki)

Minn er gult og doppótt kameldýr sem heitir Sebastian Amadeus Grollmayr. Hann kemur frá landi sem heitir Ikea.

Vinkona mín á stóran Labrador bangsa sem heitir Sindri. Það er bannað að slefa á hann og ég má eiginlega aldrei koma við hann af því að “ég er óhrein”. En ég hefndi mín með því að taka nektarmynd af mér og honum saman þegar hún var ekki heima. Hún varð brjáluð:D



Áttu bangsa? Eða ertu alltof harður/hörð fyrir þannig?