okey hvað er vandræðalegast móment sem þið hafið séð aðra manneskju lenda í

mitt er sko að ég var einu sinn í stærðfræði tíma og kennarinn var að aðstoð eitthverja stelpu og hún var bara eitthvað ekki að skilja dæmið og sagðist vera að gera allt rétt svo kennarinn kíkir á þetta , lítur svo upp og segir geðveikt hátt yfir allan bekkinn 1 sinnum 2 er ekki 3. Ég hef aldrei séð neina manneskju roðna jafn mikið og það sást alveg hvað henni leið kjánalega og það voru allir að hlæja að henni