Jæja hér er einn svona frekar hefðbundinn þráður :) Alltaf gaman að lesa um vandræðaleg atvik svo að ég spyr: Hvað er það vandræðalegasta sem að þið hafið nokkuð tíman lent í?
Ef ég segji sjálfur frá þá ætlaði ég einu sinni að bregða frænda mínum niðrí bæ og hljóp fyrir horn og faldi mig. Svo kom frændi minn labbandi og allveg stökk upp og öskraði : BÚÚÚ!!! Neinei auðvitað var þetta ekki frændi minn heldur einhver random 30-40 ára gaur. Frændi minn stóð þarna svona fimm metrum frá gaurnum og fer í kast :) Ath. Ég er ekki alltaf að bregða vinum, þetta gerðist þegar að ég var 12 ára eða eitthvað ;)