Ég ætla að taka það fram að ég elska jólin. Ég er algjört jólabarn í mér…

En vá hvað það er böggandi að sjá fólk sem æsir sig yfir einhverjum dónaskap eða svoleiðis út af því að það eru jólin!
Ég man ekki orðrétt hvað stendur í 9/11 greininni á deiglunni en einhver sagði svipað og “Þetta er ekki alveg rétti tíminn til að senda inn svona grein” - meinti jólin. Af hverju má ekki tala um 9/11 þó að það sé 12/25?
Af hverju má ekki einhver kalla sérstakar týpur fávita (dæmi af /tiska) af því að það eru jól?

Okei, jólin eru tími friðar og eitthvað svoleiðis, en á ég þá bara að hætta að finnast þetta pirrandi og svona ljótt og þessir leiðinlegir? >_<


Gleðileg jól!

Bætt við 25. desember 2007 - 18:47
Já, ég vil líka taka það fram að mér finnst auðvitað að fólk eigi alltaf að vera kurteist og svo framvegis, en það er bara ekki svoleiðis :)
-Tinna