Ég sat í sófanum þegar að pabbi skipti fór að skipta á milli stöðva. Hann lenti á Ómega. Þar var maður að segja “Femínisismi er djöfullegur”. Ég efast um að einhver hérna hafi séð þetta en mér var virkilega misboðið. Hann hélt áfram: “Kvennréttindi eiga rétt á sér. En Biblían segir að maðurinn sé æðri konunni og höfuð heimilisins. Femínismi fer gegn orði Guðs og er því djöfullegur.” Þetta var íslenskur maður.

Varð bara að koma þessu frá mér.

Hvað finnst ykkur?

(Btw, þetta í gæsalöppunum er ekki orðrétt.)