Jæja, var að koma frá tannlækni um daginn, hann hafði deyft mig til að draga úr auka tönn.

Svo fer tönnin og allt gott með það og ég fer heim.
Svo á meðan deyfingin er ennþá mikil byrja ég að naga kinnina eins og svo oft áður. Svo fer deyfingin að minnka, ég finn blóðbragð og svíður helvíti mikið í kinnina, og ef ég þreifa með tungunni og er þá tungan öll rifin og tætt. Passa mig á þessu næst.

Og til að bæta gráu ofan á svart er ég með túrverki.