Hver er eiginlega búinn að missa vitið?

Hvað er málið með allar þessar Hesta-greinar á forsíðunni?!? Hvað er að gerast?

Ég hef ekkert á móti hestum og hestafólki. En ertu virkilega að segja mér að /hestar sé svo vinsælt áhugamál að einhverjum fannst það góð hugmynd að setja FIMM ….. já FIMM! greinar á forsíðu huga.is? Hvað er að gerast. Það ættu bara einfaldlega ekki að vera FIMM greinar af sama áhugamáli á forsíðu huga. Sama hvaða áhugamál en HESTAR? ER HEIMURINN AÐ FARA TIL FJANDANS??!?

Hvað er að gerast? Ég bara skil ekki…





….hestar, andskotinn sjálfur….

Bætt við 13. nóvember 2007 - 16:42
Var þetta svo allt samþykkt af sama stjórnandanum ?!?

Er spamm ekki ólöglegt?