Já það fer ýmist í taugarnar á mér. Ég ætla að telja upp fjóra hluti.

1. Lightwell
2. “Takk fyrir addið” - Eina ástæðan fyrir því að ég held mig frá MySpace
3. “Kvittið í Gestó!11 :*:*:*”
4. Veggjakrot

Veggjakrot. Til hvers? Mér er alveg drullusama þó svo að Nökkvi var hér eða “MQD” vinaklíka fjögurra stráka hafi hangið þarna eitt sinn. Ég er þó ekki það á móti því að ég nýt ekki þess að hafa flott verk, þrívídd, myndir, en ef þú ætlar að nota einn lit og skrifa í nær óskiljanlegri skrift einhverja þrjá upphafsstafi í nafninu þínu - slepptu því.

Ég var á rölti í hverfinu mínu, labbaði framhjá búðinni Ellefu-Ellefu þar sem að tvær stelpur höfðu skrifað

"Kolla og Essa voru hér!!! ;)

http://blog.central.is/ ….
KVITTA Í GESTÓÓ!"

Á vegginn þar..
Come.. on…