Sko ég er búin að sjá fullt af svona hnakka titlum herna inná og ég er ekki að skilja fólk sem er að setja útá hnakka.
Ég er ekki hnakki eða neitt svoleiðis en þetta fólk má vera eins og það vill.
Svo er ekkert endilega að stelpur hlaupi alltaf á eftir hnökkum heldur bara þeim sem þær vilja fá. Sumar stelpur fíla hnakka og aðrir ekki.
Ég þekki fullt af hnökkum og ég þarf bara að segja að það er ekkert öðruvísi við þetta fólk. Þótt það setji gél í hárið á sér og ekur á “sportbílum” eins og fólk vill kalla það þarf þetta ekkert að vera leiðinlegt fólk.
Ég skil ekki fólk sem þarf að setja útá annað fólk.
Leyfum hnökkum að vera hnakkar, Gothurum að vera Gothurum og Gellgjum að vera gellgjur ! Fólk er eins og það vill. Hættið að skipta ykkur af því og lifið ykkar lífi!

Afsaka allar stafsetnigarvillur, er í skólanum og kennarinn hótaði að henda mer út ef hún sæi að eg væri að gera þetta.
*Á sætustu kanínur í heimi*