Núna þegar er kominn vetur.. þá er ég hættur að geta verið úti lengi, pretty much útaf því að ég er hættur að sjá svona hálf 9. Ég er náttblindur(já það er til).

Og ég elska að spila fótbolta, gerði það nánast hvert einasta kvöld í sumar. En núna, get ég ekki spilað lengur en til svona 15min yfir 8 því þá er ég alveg hættur að sjá boltann. Svo er ég að fara að taka bílprófið í nóv. Og dö, í nóv er myrkur. Þannig ég á örugglega eftir að fá nokkuð margar villur þar sem ég sé 0 í myrkri. :/

Jæja, óheppin ég? Jáms, þá er bara spurningin.. get ég gert eitthvað í þessu? Hef farið til fjölda lækna, nota ekki gleraugu og þarf ekki gleraugu. Einhver sem hefur einhverja hugmynd um hvað ég get reynt?
Að vera er að vera skynjaður.