Get ekki sagt að þessi korkur sé mikið nöldur en anyhoo…

Hér á huga finnst mér alveg svakalegt hvað ef einhver minnist á hnakka fær hann alveg 200 svör: já helvítis hnakkar marr.
Why?
Það er eins og allir hérna á huga hafi eikkað á móti hnökkum. Ég skil það ekki.
Ég get alveg sagt það ég er frekar mikill hnakki, ég meina ég dúa á mér hárið, fer í ljós, kaupi mér dýr föt og fleira sem þig getið límt við hnakka.

Ég meina eru þá ekki bara hnakkar þeir sem hugsa aðeins um hvernig þeir líta út?

Hvað hafiði svona á mót hnökkum?

(p.s. já ég er í Verzló og vá hvað ég á eftir að fá mikið af skítköstum HAHA)

Bætt við 8. september 2007 - 18:42
Ok vá djöfull þekkið þið skaddað fólk það eina sem ég er búinn að sjá hér að neðan að þið haldið að hnakkar haldi að þeir séu betri enn allir aðrir! þúst wtf.
Ég þekki engan þannig hnakka :/

Svo stórlega efa ég að allar þessar týpur (hnakkar, emo, goth, metalhausar) séu að reyna að vera eins og allir aðrir, þeir klæðast bara eins og þeim finnst flott.