FUCK YEAH! ég er svo heppinn… ^^ *hoppar úr gleði*

Bloc Party á balli í Flensborg
Breska sveitin Bloc Party kemur fram á tónleikum í Flensborgarskóla í Hafnarfirði í október. Sveitin verður á landinu að spila á Iceland Airwaveshátíðinni. “Það eru strákar í tónlistarráði hjá okkur og þeir voru svo ótrúlega sniðugir að prófa að senda þeim póst og spyrja hvort þeir vildu koma og spila á tónleikum um leið og þeir kæmu að spila á Airwaveshátíðinni. Bloc Party sagði já,” segir Olga Eir Þórarinsdóttir,oddviti nemendafélags Flensborgarskóla í Hafnarfirði. “Ég var ekkert smá glöð þegar ég heyrði þetta,” segir Olga og bætir við: “Það er dýrara að fá Papana en Bloc Party, ég get sagt þér það. Busaballið okkar var dýrara en þetta.”

Nánar í Blaðinu í dag


*hoppar meira*