Ég er að pæla í að flytja núna bráðlega. Það er samt ekkert 100% ákveðið, en mig langar að pæla í því. Eins og þið vitið er leiguverðið hér á höfuðborgarsvæðinu suddalega hátt, þess vegna langar mig að leigja með einhverjum.

Ég var að pæla hvort það væru einhverjar stelpur hérna sem eru í svipuðum pælingum og ég en vantar einhvern til að leigja með? Þá er ég að hugsa um sirka 18-25 ára. Mig langar mest að búa í 104, 105 eða 101. Viðkomandi verður að vera svona frekar reglusöm og myndi ekki reykja innandyra.

Ef einhver heldur að þetta passi við sig og er að leita að meðleigjanda (ég er 19 ára stelpa, bæði í vinnu og námi), hafið samband við mig =) Það væri þá töff að kynnast fyrst á msn og hittast á kaffihúsi og svoleiðis. Greiðslugeta mín er sirka 40þús á mánuði, svona á meðan ég er í skóla - sem er bara til áramóta.

Bætt við 29. ágúst 2007 - 12:06
Hm ég ætti að taka það fram að ég flyt til útlanda á næsta ári, svo þetta er ekki að eilífu. Það getur verið að ég fari í mars, en í seinasta lagi ágúst. En það ætti ekki að vera mikið mál að finna annan meðleigjanda =)