Ok, ég veit það er alveg nóg af þessu strætónöldri en ef ég hefði ekki svona góð stjórn á skapi mínu og gæti ekki litið á bjartar hliðar á hlutum þá væri ég líklegast búinn að brjóta allt og bramla!!

Ég ætlaði að taka strætó númer 36 í morgun og var með tímana og allt á hreinu og datt ekki í hug að neitt myndi klikka,en nei hlaut eitthvað að klikka hjá strætónum.

Ég mætti nokkrum mínútum áður en hann átti að koma og beið í örugglega 15 mín. eftir honum en hann bara kom alls ekki.

Og þetta varð næstum til að ég missti af nýnemakynningunni í MH! En ég slapp samt.:D