Góðan daginn! Ég er í vinnuni og leiðist og vildi bara segja ykkur að ég er að fara til Tenerife eftir 3 daga með 7 vinum mínum og er ég að fara að skemmta mér í 2 vikur, surfa, djamma, versla, slaka á.
Ég bý í Hveragerði og við ákváðum að panta okkur eitt stykki limósíu og tökum við hana héðan úr Hveragerði og skutlar hún okkur út á Keflavíkurflugvöll á Þriðjudaginn.
Ég er heelvíti spenntur fyrir þessari ferð, ég fór í fyrra til Benidorm en það var ekkert svaaakalega skemmtilegt þar þótt það hafi nú verið gaman.
Það versta við það var það að það var um 40stiga hiti úti á daginn og ég svaf bara allan daginn. Hata að vera í of miklum hita þó ég þoli hann alveg.
Ég hef ekki hugmynd af hverju ég er að segja ykkur þetta en ég hef bara ekkert að gera hérna.

P.S. Vitiði um einhverja síðu sem drepur tímann. Helst enga leiki, má ekki vera í svoleiðis í vinnuni.