já, héðan í frá mun ég túra á að það tekur við líf eftir dauðann!

ég var að rölta áðan fram því ég þurfti að fara á klósettið. Herbergið mitt er í vestur enda hússins og klósettið í austurhluta hússins. Svo ég rölti fram og um leið og ég fór úr herberginu mínu fann ég á mér að eitthvað myndi gerast. Svo, ég fór á klósettið, en þegar ég kem út, þá sé ég að það bíður einhver eftir mér fyrir framan klósettið, ég hrekk í kút. Manneskjan/draugurinn/andinn bendir í átt að reykjavík og reynir að segja eittvhað við mig, því ég sé hann hreyfa varirnar. Síðan hreyfir hann hendurnar eins og hann haldi á riffli eða einhverri byssu í þá áttina. Hann tekur kipp eins og hann sé að sýna mér að hann hafi skoið eitthvað eða einhvern. Síðan er eins og hann fari að gráta og viti ekkert hvað hann sé að gera.
Þegar ég kemst loks úr sjokkinu sem þessi vera gaf mér, þá sé ég að hann er með einhverskona sár á höfðinu, frekar messy og blóðugt, frekar nasty. Svo að sjálfsögðu var það fyrsta sem mér datt í hug að þetta væri annarhvor gaurinn sem tengdist skoárásinni í rvk í dag… Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera núna, en ég finn ennþá fyrir einhverjum í húsinu. En allan tíman fann ég að þessi vera var ekki hérna til að hræða eða skaða mig eða þá sem búa hérna á nokkurn hátt. En, þetta var “kreepy as hell”

En já, héðan í frá mun ég trúa á líf eftir dauðann, það er langt síðan mér brá svona mikið.

hafi þið lent í einhverju svona?
Nissan Primera GX ‘97 *búið að henda*