Hey boys n' girls…Ég nenni ekkert að setja þetta inn neinstaðar annarstaðar heldur en hér svo ekkert múður með það.
En ég held að ég hafi upplifað svefnrofalömun í morgun þegar mig var að dreyma bara venjulegan draum, svo fór ég að hlaupa og þá vaknaði ég við það að ég var að reyna að hreyfa mig en ekkert gerðist í alveg 20 sekúndur, svo fékk ég þetta bragð í munninn sem var eins og blátt ópal eða eitthvað.
Svo reyndi ég að fara aftur að sofa en þá gerðist þetta aftur nææstum því í um það bil tvær sekúndur og aftur og aftur og á endanum gat ég ekki lengur verið í rúminu og fór á fætur…Var þetta svefnrofalömun eða eitthvað annað? Er pínu smeykur við að fara í rúmið í nótt.

Og kannski til að gera þennan þráð ennþá minna tilgangslausan þá spyr ég hvort þú hafir einhverntíman upplifað svefnrofalömun og sagt mér ásamt hinum lesendum frá því svo ég t.d. gæti borið það saman við mína upplifun til að vera viss um hvort þetta hafi verið ímyndun eður ei. :D

Kthxbye!!