Jæja, í dag var hinn margrómaði föstudagurinn 13.
*bamm bamm baaaaammm*

Lentuð þið í óhappi í dag?

Ég byrjaði daginn á því að sofa yfir mig og mæta hálftíma of seint í vinnuna snemma í morgun..Stillti klukkuna klukkutíma of seint. Þetta er í þriðja sinn sem ég sef yfir mig í sumar! En hey, allt er þegar þrennt er. Vona ég.

Fleiri óhöpp í dag? Skar mig smá á puttanum. Grýtti kartöflum í gólfið. Uhm..eitthvað fleira. En auðvitað, þá tengjast þessi atvik því ekki að í dag er föstudagurinn 13. Heldur miklu frekur að ég sé bara svona mikill klaufi:)

Alltaf gaman þegar það er föstudagurinn 13.

~ Orkamjás