Ég er að fara til London eftir tvær vikur, og við mútta hringdum í Icelandair til að tjekka með mat í flugvélinni, því að ég er með fiski og eggja ofnæmi.
Uppfrosna Friðrikan sem svaraði í símann vissi ekki neitt um neitt og náði í einhvern yfirmann, sem vísaði okkur á eitthvað netfang sem er ekki til.
Ekki nóg með það að ég borgi fyrir matinn og fái ekkert, heldur veit ég ekkert hvenær og hvernig ég kemst í mat eftir flugið!
Og þegar ég verð svöng (á pillunni) þarf ekki nema litlar skammir til þess að ég fari að gráta.

*haugur af “fallegum” orðum til flugfélagsins frá helvíti…