Ok það hafa skapast svakalegar umræður hér fyrir neðan um greinina “fallegt lag” sem hulda setti inn á korkin sem kastar manni beint í að downloda lagi, og enn neðar er mikil umræða um undirskriftir.
Og núna síðast kom aquatopia með þessa yfirlýsingu “Þetta einfaldlega varð til þess sem ég varaði willie við, nánast allt html fer úr öllu! *pirr*”
Mér persónulega er nokk sama hvort þetta verði bannað eða ekki, sjálf var ég bara að læra smá í þessu en get alveg skrifað mína undirskrift og sleppt hinu, en það virðast vera nokkrir sem finnst þetta nauðsynlegt og ég virði það.

Og mér finnst asnalegt og í raun ósanngjarnt að banna þetta bara af því einhverjir eru að klúðra þessu og láta þá þeirra klúður bitna á öðrum, afhverju ekki bara að banna þá sem eru með risa undirskriftir eða klúðra einhverju og senda mann á aðrar síður óumbeðið ???
Það er fullt af fólki hér sem kann HTLM (þó ekki ég)og notar það skynsamlega, og það er ekkert réttlæti í að banna þeim að nota þetta af því einhverjir eru að skemma fyrir öðrum.
Er ekki meira vit að byrja á að setja einhverjar reglur á þessa notkun og þeir sem að brjóta þær fari í bann ? og ef það gengur ekki þá að banna þetta alveg, mér finnst það sanngjarnara.

P.s ég hef alls ekkert á móti huldu, en ef að þetta hefði t.d verið ég sem að gerði þetta klúður væri ekki meiri möguleiki á að ég hefði hreinlega verið bönnuð ? bara pæling :)


<br><br><b>Kv. EstHer</b>

<font color=“gray”>“Hinn vitrari vægir.”
<i>Snorri Sturluson: Heimskringla</i></font
Kv. EstHer