Já krakkar.
Þeir geta verið ótrúlega leiðinlegir.
En oftast eru þau fyndin.
Litli bróðir minn og systir voru á Eyjamótinu sem er búið að vera í gangi síðastliðnu daga.
Pabbi minn var svona að hjálpa til þarna og einn daginn fór hópurinn í sund.
Og eins og gengur og gerist þá byrjuðu þeir að klæða sig úr og þegar einn fyrirliðinn(aðalkallinn, yfir hópnum) var kominn á nærurnar sneri einhver strákur sér að honum og sagði mjög hátt
' VÁ! Þú ert eins og afi maður!'
Og pabbi og allir þarna sprungu úr hlátri :)

Vitið þið um einhverjar svona skemmtilegar sögur af krökkum?