Plahh, nú er ég svo lítið pirruð og verð að nöldra smá!
Þannig er það að vegabréfið mitt er týnt og ég verð að finna það þar sem ég er að fara til Bandaríkjana með kærastanum mínum. Mamma var að koma heim og ég var að vona að hún vissi um það. En nei, hún hjálpar mér engan veginn að leita :@ Segir mér að kíkja í hilluna mína og leita á milli bókanna minna! Gera þetta og gera hitt… Skil ekki hvernig vegabréfið ætti að vera í hillunni minni þar sem það er nú ekki svo langt síðan ég flutti og ég þurfti að fara í gengum þessa sömu hillu með u.þ.b. sama draslinu og setja í kassa :S
Plahhh, þá ætla ég að fara hvolfa öllu herberginu mínu og kannski ganginn líka.. Láta mömmu fá nett flog þegar hún kemur heim.. Ég hafði ekki eitt tíma mínum í vitleysu ;)

ps. Fiskarnir mínir eru greinilega svangir.. ÞEIR eru að bíða eftir því að einhver fæði þá :P
Súkkulaðihjartað <3