Hefur þú lent í því að þú kannast við einhverja manneskju, þú kannski spjallar við hana og veist hver hún er, þegar einn daginn stendur alveg manneskja við hliðina á henni? Þú hefur kannski verið að spjalla við þær í sitthvoru lagi án þess að vita að þessar manneskjur væru tvíburar??

Er að vinna í búð út á landi og dísess.. hvað þetta er oft búið að koma fyrir mig! Ennþá daginn í dag spyr ég sumt fólk: Uhh.. fyrirgefðu að ég spyr eins og fávís kona en, ertu tvíburi?
Fólk er alltaf jafn hissa: Já vissuru það ekki? Við erum eineggja tvíburar!

Það er greinilega mjög mikið af tvíburum í mínum heimabæ.. :S