Mig langar bara að nöldra yfir fávita sem ég hitti áðan. Ég ákvað að fá mér Subway, þannig að ég renndi inn á Nesti þar sem Subway er opið. Ég er í mestu rólegheitum að skimast um eftir bílastæði þegar einhver gaur labbar alltíeinu framfyfir bílinn. Ég þarf að snarhægja á mér til að keyra ekki yfir hann. Hann staulast eftir götunni og ég fylgi á eftir, þolinmóður yfir að komast í stæði. Eftir nokkra metra snýr maðurinn allt í einu við, gerir sér lítið fyrir og sparkar í hornið á bílnum rosalega fast. Mér dauðbregður við þetta og stari bara á hann. Hann lítur á mig og labbar svo í burtu. Ég legg í stæðið, lít á bílinn (sér ekki á honum) og svipast svo um eftir manninum, sem er auðvitað hvergi að finna á þessum punkti.

Djöfulsins ógeðslega fífl. Ég hefði auðvitað átt að keyra yfir helvítis fávitann, enda væri ég þannig að gera mannkyninu greiða. En góðu fréttirnar eru hins vegar að samlokan bragðast ljómandi vel.