Barnaníðinga :[ Aðvörun: Er í vondu skapi.

Hvað í fj. fær fólk útúr því að misnota börn?

Ég man eftir að hafa séð þátt frá CNN, þar sem að einhver fréttamaður fór til Rússlands/Lettlands/Eitthverja þeirra landa til að gera heimildarmynd um þessi ógeð sem að selja börn. Djöf. leið mér illa við að horfa á þetta. Korn ungir krakkar (strákar og stelpur) að selja sig á götunni. Eitt sem ég bara get ekki hætt að hugsa um er þegar þessi fréttamaður hafði samband við einhvern sem sagði að hann gæti útvegað honum strák. Fréttamaðurinn fór á eitthverja lestarstöð/útimarkað og hitti þar strákinn. Pælið í hvað þessi krakkar fara í gegnum? Láta eitthvað ógeðslegt fólk djöflast á þeim eins og ég veit ekki hvað.

Síðan sit ég hérna á Íslandi og þarf að horfa uppá krakka útí útlöndum sem eiga fjölskyldur sem hafa örugglega ekki mikið af peningum á milli handanna. Ég hef heyrt umræður þar sem krakkarnir eru seldir bara til þess að fjölskyldan geti fengið smávegis pening. Sit hérna og get ekki gert neitt. Auðvitað veit ég að ekki hægt að bjarga þessum mörg þúsundum barna sem lifa við það að vera nauðgað, barin eða þá að þau fá ekkert að borða.

Í vinnunni horfi ég á börn sívælandi í foreldrum sínum yfir því að fá ekki hitt og þetta “NAMMI NAMMI!” “MAMMA MÁ ÉG FÁ SVONA?”. Svo heyri ég stundum börn sem skipa foreldrum sínum að koma að ná í sig hingað og þangað “AFHVERJU ERTU SVONA SEIN? DRÍFÐU ÞIG”

Og núna sit ég hérna og hugsa um alla þarna úti sem eru ekki það heppnir að eiga fjölskyldu, þak yfir höfuðið, hafa ekki nóg fyrir mat, eru lamin oft á tíðum, er nauðgað, eru misnotuð.

Hugsa um að það er EKKERT sem ég get gert. Nema skrifað grein á www.hugi.is um hve mér þykir þetta leitt.

Það hlítur að vera verulega brengluð manneskja sem að gerir barni þetta. Ég meina finnst þeim þau hafa völd? Að geta stjórnað og hrætt aðra manneskju? Að mögulega hóta þessari manneskju líkamsmeiðingum eða dauða? Þetta fólk mætti deyja mér væri sama. Það er fólk í þessum heimi sem að berst hetjulega við allskonar sjúkdóma. Það fólk mætti lifa. Hinir sem að fá eitthvað útúr því að eyðileggja litla sál mættu fara niður.

Ég vildi að ég gæti skrifað eitthvað merkilegt. Þýtt það yfir á mörg tungumál og komið þessum “boðskap” eða hvað ég get kallað þetta áleiðis til annarra. Vildi að ég gæti skrifað eitthvað sem að opnaði augu þessara sjálfselskra satanista sem nauðga börnum. En auðvitað er það ekki hægt. Þetta verður ávallt svona..