Ég hef séð þónokkra korka um Foreldra og hvað þeir eru eitthvað að fara í taugarnar á einhverjum viðkvæmum unglingssálum.

Þegar ég les um “ófarir” annara í sambandi við “leiðinlega” foreldra þá sé ég hvað ég hef það gott á þeim velli.

Ég hef engin húsverk.(ég hjálpa nú samt til með bestu getu)
Ég hef aldrei nokkurtíma verið straffaður.
Ég hef aldrei þurft að borga fyrir suma hluti sjálfur t.d nýtt hjól ,rúm ofl.
Ég hef aldrei verið “sendur uppí herbergið mitt”.
Ég fæ enga vasapeninga en þegar ég bið um pening þá fæ ég hann .
Ég man ekki eftir einu skipti sem einhver hefur öskrað á mig / Skammað mig mikið.
Ég hef engann spes útivistartíma .


Ég tel mig ekki vera neitt dekraðann og haga mér ekki þannig , þó ég sé yngstur af 4 krökkum.
Og ég er engin frekja bara til að fá það á hreint :)