Jæja nú er komið að mega nöldri. Ok ég er oftast kurteis við kúnna og svoleiðis en djöfull geta þeir verið “nasty” við mann. Og jáá við megum ekki vera dónaleg við þau til baka en þau geta ekki búist við því að maður haldi kjaftinum þegar fólk fer að móðga mann persónulega. Hvað er að fólki? Spyr ég bara. Fær það ekki nóg kynlíf heima hjá sér? Er það svona fjandan óhamingjusamt að það þarf að taka það út á eitthverju starfsfólki í búð?

Það er stelpa að vinna með mér sem er með meðfæddan galla (segi ekki hvern..) en það er ekki andlegt. Hún er rosalega dugleg í vinnunni og ég dáist að því hvernig hún getur unnið með þennan galla. Hún er ekkert verri en við sem erum heilbrigð :] Jæja það kemur manneskja á kassann hennar og með þvílíkan stæla fer að setja útá þennan galla hennar. Þetta er persónuleg móðgun og ég sver hefði ég verið í hennar sporum þá hefði ég kýlt helv. kellinguna. Stelpan sagði ekki neitt heldur bara afgreiddi hana og svo kemur þessi andsk. tík með setninguna; ,, Afhverju eru þeir með stelpu sem er svona eins og þú ert á kassa? Rosalega er þetta lélegt hjá þeim" Hvað er að þessari konu? Hún á örugglega alvarlega bágt. Maður gerir þetta ekki! Enda blöskraði mér og þessi stelpa kom til mín seinna meir í sjokki og sagðist hafa svoo langað til að kýla konuna.

Segið mér að ég hafi rétt á að vera pirruð? Þessi stelpa er frábær starfsmaður ekkert verri en hinir. Arg svona fólk fer í taugarnar á mér..