Ég fór í skólann ógeðslega þreyttur eftir að hafa unnið í einhverjum ömurlegum fyrirlestri fram að miðnætti en huggaði mig við það að það verður pítsaveisla í umsjónartíma í dag (því við unnum einhverja keppni í skólanum) en neeeiiii.
Lífsleiknikennarinn/umsjónarkennarinn minn mætti ekki í skólann og ég vann ritgerðina til einskis í dag og engin pítsaveisla!! Svo neitar þessi kona að hafa bekkjarkvöld á öllum dögum nema mánudögum, svo frek eitthvað og við höfum aldrei haft bekkjarkvöld alla önnina!!! Ég er alveg fáránlega pirraður núna!!