úff, dagurinn byrjaði hjá mér með því að ég vaknaði
eftir 6 tíma svefn. dofinn og hóstandi,
eftir smástund ákvað ég að drífa mig af stað í skólann, ég legg bílnum í flýti og hleip inn í íslenskutíma
sem var ný byrjaður. ég er ýmist sofandi þarna eða hálf dottandi að reina að fylgjast með eins og ég mögulega get
svo var tíminn loksis búinn og ég ákveð að fara
heim og sleppa stærðfræðini enda fárveikur.
þegar ég kem að bílnum liggur blár miði þarna og
horfir á mig.
ég fór að skoða hann og sá að þarna var ég 2500 kr fátækari.
ég fór bara heim og hringdi í númerið á sektini
eftir að ég róaði mig niður, þá sagði konan að ég
þyrfti að fara á skrifstofuna og fylla út skriflega
kvörtun :S:S
helvítis skrifstofu dýrinn eru með þetta allt á
hreinu greinilega þar sem ég er örugglega ekki
sá fyrsti sem hringir þarna með ólátum.
og það versta við þetta er að ég lagði ekki einusinni ólöglega (bara pínu).
ef kvörtunin gengur ekki í gegn þá borga ég þetta bara með öllum þessum námsmannapeningum sem ég á.