Nokkur nöldur frá mér:

1. Ég er í skóla í öðrum bæ en ég bý í og fer ekkert of oft heim, en í dag ætlaði ég loksins að fara heim. Ég var búin að redda mér fari og var tilbúin að fara heim. En nei, þá var orðið ófært nánast alla leið og fullt af fólki fast uppi á heiði. Heimavistin lokuð um helgina, allir farnir heim og ég ekki með lykil.

Það versta er að einmitt þessi helgi er eina helgin sem var mikilvægt að komast heim. Það er blúshátíð heima (á Höfn) og ég er búin að bíða í marga mánuði eftir því, þar sem ég hlusta mikið á blús. Þá þurfti einmitt að vera ófært! Ég komst reyndar að því fyrir örfáum dögum að ég hefði kannski ekki komist á þetta, því það er 18 ára aldurstakmark og ég verð 18 eftir mánuð! Auðvitað fær maður ekki að hlusta á tónlist fyrr en maður er 18 ára! Og ég drekk ekki einu sinni!

2. Til að bæta gráu ofan á svart var hringt í mig úr vinnunni, sem ég er að reyna að hætta i, og ég þurfti að fara að vinna meðan sá sem var á vakt fór og náði í vin sinn sem var fastur uppi á heiði … Það átti að verða klukkutími, en varð 2 klukkutímar. Ég var að fara að horfa á Gettu betur þegar ég þurfti að fara. Neibb, missti af eina sjónvarpsefninu sem ég hef fylgst með á þessu ári!!

3. Ég er búin að vera alla vikuna í veseni með tölvuna mína. Hún er búin að vera frekar undarleg síðustu dagana. Ég kemst ekki inn á msn og fleira. Ég er búin að fá hjálp frá allskonar tölvunördum og ekkert virkar. Ég ætlaði bara að formatta hana en ég hef ekkert Windows til að geta sett upp aftur (diskarnir sem fylgdu tölvunni eru heima og ég ætlaði að ná í þá um helgina …)

4. Ég er að drepast í puttunum! Hafiði lent í því að klippa neglurnar of langt og svo rifnar einhvernveginn undir þeim? Ég gerði það, stakk meira að segja spili undir eina. Það er sárt. En hafið þið lent í því að það er eins og smá bútur af nöglinni sé að rifna af við hliðina af nöglinni og stingst einhvernveginn inn í puttann á manni. Það er líka sárt. Saman verður það viðbjóðslega sárt. Ég er búin að vera mjög lengi að skrifa þennan þráð því ég get ekkert notað þumalfingur eða visifingur á hægri hendi útaf þessu!

Ég er ógeðslega pirruð. Ef ég hefði ekki systur mína hjá mér um helgina væri ég orðin geðveik á þessu!