Ég var semsagt að heyra góða sögu um hvað gerðist fyrir vin kærasta systur minnar.

Hann keypti skjaldböku í útlöndum og kom með hana heim til íslands .. Hann hafði átt hana í nokkra mánuði en svo bara dó hún …

Hann vildi ekki henda henni eða grafa heldur ákvað að festa hana uppá vegg!

Hann gerði það og þar var hún (hann lét hana hvíla á 2 snögum með magann við veginn og annann snaga fyrir ofan hana til að halda henni kjurri)

Svo þar fékk hún að hvíla í einhverja mánuði þangað til að hann kom heim einn daginn og sá að hún var farin að hreyfa sig á veggnum !

Þá var greyið bara í dvala !!

Honum dauð brá maður .. hún var þarna spriklandi uppá vegg .. búin að skrapa málinguna af veggnum með fótunum .. Guð má vita hvað hafi farið í gagnum hug hennar þegar hún vaknaði!


Mér fannst þetta þónokkuð fyndið.

Bætt við 2. mars 2007 - 22:54
Bara bæta við að Skjaldbakan er fín núna .. She is alive and well :)