Mig langaði bara loksins að koma mínu nöldri á prent þar sem ég er svo hæfur í því.
Í fyrsta lagi langar mig að benda fólki sem [að] skrifar alltaf “sem að” í staðinn fyrir einfaldlega “sem” eins og ég hefði getað gert hér rétt áðan (hornklofinn) að hugsa sig aðeins um og gera það sem minnst, þetta lítur nefnilega svo heimskulega út á prenti.
Einnig rekst ég oft á skrifháttinn “að hlægja” þegar það á að vera “að hlæja”, “að hlægja” merkir að hlægja e-n, þ.e.a.s. að fá einhvern til þess að hlæja.

Skrifa meira þegar mér dettur það í hug.<br><br>-May Conan Be with All of You-