Arrrg, ég er að DREPAST!

Sat í mestu makindum uppi að horfa á sjónvarpið með eitthvað smá öskudagsnammi við hliðina á mér. Fékk mér EINA karamellu (gat ekki staðist það :D) og það næsta sem ég veit er að blóðið spýtist úr munninum á mér yfir sófann og nammipokann! Ég hljóp niður og skrúfaði frá krananum en spýtti í leiðinni helling af blóði yfir kranann og spegilinn.

Þá hafði karamellan dregið úr mér eina af mínum fáu barnatönnum sem eftir eru (þær fara óvenju seint hjá mér) sem var ekki einu sinni byrjuð að vera laus. Og það er ekki ennþá komin almennileg blóðstorknun. Þakka samt fyrir að þetta var ekki fullorðinstönn! Og nú þarf ég bæði að þrífa sófann og baðherbergið!

Áááááááááiiiii…