Mér finnst að það væri alger snilld ef maður gæti stillt þannig að maður sæi bara greinar úr þeim áhugamálum sem maður hefur áhuga á. Á forsíðunni koma greinar úr flestum áhugamálum, í egóinu geturu stillt greinar úr hverju áhugamáli fyrir sig en þá er maður kannski kominn með fullt af gluggum og orðið svo mikið eitthvað.

Einfalt yfirlit bara yfir allt væri alger snilld, bara eins og maður stillir áhugamálin þá gæti maður stillt þær greinar sem maður vill sjá.

Væri reyndar alger snilld með korkana líka.. en það er önnur saga :-)<br><br>Kveðja Kisustelpan :-)