eins og titillinn segir þá held að ég sé að verða vitlaus…..á seinasta einum og hálfum mánuði hafa 3 úr fjölskyldu minni dáið, allt náskylt mér, fyrsta var amma mín sem fékk heilablóðfall um jólin (enda voru þetta ekki bestu jól í heimi), sú önnur var lítil frænka mín sem var ekki einu sinni orðin 2 ára gömul og var með einhvern sjaldgæfan sjúkdóm sem olli því að hún varð heyrnalaus og sjónlaus, og sú síðasta er langaamma mín sem dó reyndar örugglega úr elli, því að hún var orðin svo veik….þetta er ástæðan fyrir því að ég held að ég sé að verða vitlaus vegna þess að ég snappaði í íþróttum upp úr þurru og byrjaði að ljúga að kennaranum! ég lýg mjög sjaldan, sérstaklega þegar það kemur að kennurum (lýg bara að þeim ef ég nennti ekki að læra heima, lýg engu öðru) og ég var send heim út af þessu….

og plís engin skítaköst, ég er alls ekki í skapinu….