Djöfullsins andskotans helvítis fáviti get ég verið. Hálviti.

Ég set þetta hér því það er ekki vott af róman í þessu, ég er meira pirruð útí sjálfa mig en að kalla þetta eitthvað vandamál.

Ég er bara svo auðtrúa, maður á bara að minna sig á því að vera sjálfum sér samkvæmur og trúa því sem manni dettur fyrst í hug.

Annars er ég búin að vera yfir mig hrifin af þessum strák og já, við byrjum saman.

Fyrst trúði ég ekki að þetta væri að gerast, og var með efasemdir - Var ekki að trúa því sem hann sagði við mig. Svo sagði ég bara við sjálfa mig að vera ekki svona mikill auli og bara opna mig fyrir dregnum og vera skemmtileg og svona. Eins og mér einni er lagið.

Allavega líður mér einsog fífli núna því stráksi hætti með mér fyrir framan ALLA vini sína, og svo bölvaði einn strákurinn og sagðist bara ætla að borga honum seinna.

Þá var planið allavega að byrja með mér, sofa hjá mér og þá myndi hann fá 5000 kr… U JÁ, og hann svaf ekki einu sinni hjá mér, hann sagði bara öllum vinum sínum það!

Helvítis andskotans djöööfullsins.