Óvá hvað öfgafeministar geta farið í mig.

Það er alveg ótrúlegt að þessar gribbur skuli koma fram fyrir hönd feminista, þar sem þær vilja oft eitthvað allt annað en aðrir femistar.

Feministar vilja jafnræði, ég myndi telja mig vera femisnista þar sem ég vil auðvitað fá jafnhá laun og aðrir karlar í sama starfi.

Öfgafeministar vilja fá yfirræði, vilja ráða meiru og fæ hærri laun en karlar.

Ég var að lesa Fréttablaðið í morgun og rakst á þetta.. athyglisverða viðtal.

Svarti listi femínistans

“Nei, ég tala ekki við DV.” segir Katrín Anna Guðmundsdóttir talskona femínista. Og er það vegna þess að blaðið hefur birt auglýsingar frá súlukónginum Geira á Goldfinger. Það dugar til að blaðið er á svörtum lista Katrínar Önnu.
Í kvöld ætlar Femínistafélagið að ræða um “boycott” - að sniðganga fyrirtæki sem eru með vöru sem því mislíkar.
Katrín Anna ætlar ekki að leggja fyrir tillögu eða lista á fundinum þess efnis að Femínistar útiloki tiltekin fyrirtæki en sjálf er hún sannarlega með slíkan svartan lista við hendina. DV er þar efst á blaði sem og tímaritaýtgáfan Birtingur. “Ég kaupi ekki blöð sem auglýsa súlustaðina. Ég versla heldur ekki í búðum sem selja Bleikt og blátt við kassann. Ég hætti að versla í hverfisverslun minni vegna þessa og snere viðskiptum mínum til Hagkaupa sem selja blaðið ekki,” segir Katrín Anna.
Nýjasta fyrirtækið í safni Katrínar er Ölgerðin.
“Út af rassafetisma sem birtist í auglýsingum þeirra. Fyrr Egils Light.”
Vífilfell, helsti samkeppnisaðili Ölgerðarinnar, er heldur ekki ekki í náðinni hjá femínistanum: “Fór á svarta listann fyrir nokkrum árum. Fyrir Brjósta- fetisma í svipuðum stíl og Ölgerðin er með núna. Þá kaupi ég ekki vörur frá Nestley's en þeir eru með súkkulaðið Yorkies þar sem slagorðið er: Not for girls!”
“Í fyrsta lagi veit ég ekkert hver þessi kona er,” segir Mikael torfason, aðalritstjóri Birtings. “Í öðru lagi tel ég þetta vera betri aðferð fyrir fólk sem vill berjast fyrir einsleitu samfélagi heldur en bókabrennur og ámóta meðöl sem stunbdum hefur örlað fyrir”
Fréttablaðið, 6. Febrúar 2007. Bls 38.


Ég vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta þegar ég sá þetta.
Er þetta ekki aðeins of.. öfgakennt?
Deyr fé, deyja frændur,